top of page
IMG_8932.jpeg

UMHYGGJA

alúð og eftirfylgni

IMG_8938.jpeg

VIRÐING

virk hlustun og hugulsemi

IMG_8931.jpeg

NÆRGÆTNI

traust og teymisvinna

Skjólstaðir er einkarekin stofnun sem rekur búsetuúrræði
ætlað börnum á aldrinum 12-18 ára sem eru að glíma við fjölþættan vanda.
Þau gætu verið að glíma við þroskaskerðingu, hegðunarvanda, geðraskanir, fíknivandamál, tengslaröskun, áfallastreitu, kvíðaröskun,
áhættuhegðun sem felur í sér sjálfsskaðahegðun
og oft getur þessi vandi verið samsláttur við ADHD og/eða einhverfu.
Börnin hafa upplifað mismunandi uppeldisaðstæður og jafnvel félagslega einangrun.
Mörg þeirra hafa horft upp á og/eða orðið fyrir ofbeldi af ýmsum toga.

Stoð- og stuðningsþjónusta

Stuðnings- og stoðþjónusta Skjólstaða felur í sér sérhæfða þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers skjólstæðings samkvæmt verkferlum félagsþjónustu sveitarfélaga. Um er að ræða aðlagað verklag vegna fötlunar eða skerðingar, stuðning við notkun hjálpartækja eða sérbúnaðar, stuðning að almennu hreinlæti og dagsdaglegar athafnir. Einnig er lögð áhersla á að vinna eftir einstaklingsmiðaðri stuðningsáætlun og í samvinnu við fjölskyldu og annað fagfólk þegar við á, þannig að þjónustan sé heildstæð, markviss og í samræmi við þarfir einstaklingsins.

Þjónustan felst einnig í að veita einstaklingum markvissan og einstaklingsmiðaðan stuðning með það að markmiði að efla sjálfstæði þeirra, vellíðan og þátttöku í samfélaginu. Mikilvægur þáttur þjónustunnar er félagslegur stuðningur, þar sem einstaklingum er aðstoðað við að taka þátt í félagslífi, tómstundum og samfélagsstarfi, auk þess sem þeir eru hvattir til að mynda og viðhalda félagslegum tengslum. Með þessum hætti er unnið að því að draga úr félagslegri einangrun og efla samfélagsþátttöku.

Annar mikilvægur þáttur þjónustunnar er tilfinningalegur stuðningur, sem felst í að veita örugga nærveru, hlustun, hvatningu og uppörvun í daglegu lífi. Slíkur stuðningur getur hjálpað einstaklingum að takast á við streitu, kvíða eða breytingar í lífinu og stuðlar að aukinni öryggiskennd, sjálfstrausti og stöðugleika.

 

 

Markmiðið er að skjólstæðingarnir upplifi sjálfstætt líf eftir sinni getu með aðkomu og utanumhald starfsfólks Skjólstaða.

Fjöldi áætlaðra notenda er ekki takmarkaður sem og aldur skjólstæðinga.

IMG_9089.jpeg

Lifðu í dag,

lærðu af gærdeginum

og vonaðu það besta

um morgundaginn.

Gærdagurinn kemur ekki aftur, morgundagurinn er óskrifað blað, en dagurinn í dag er þinn.

 Skjólstaðir ehf. býður upp á búsetuúrræði staðsett eftir þjónustuþörfum skjólstæðings. 

Hafa samband

Tölvupóstur: skjolstadir@skjolstadir.is

​Skrifstofutími 10:00-14:00

Starfsumsóknir berist með tölvupósti

bottom of page